Þjóðlendur
Þjóðlendur eru landsvæði þar sem íslenska ríkið er eigandi lands og hvers konar landsréttinda og hlunninda sem ekki eru háð einkaeignarrétti. Um þjóðlendur gilda lög um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta nr. 58/1998.
Forsætisráðherra fer með málefni þjóðlendna í samstarfi við hlutaðeigandi sveitarfélög.
Ráðherra veitir leyfi fyrir nýtingu vatns- og jarðhitaréttinda og vindorku innan þjóðlendna skv. 2. mgr. 3. gr. sömu laga. Þá þarf leyfi ráðherra fyrir hvers kyns aðgerðum og verkefnum sem miða að því að auka bindingu kolefnis eða draga úr losun kolefnis á svæði innan þjóðlendu sem skilgreint er fyrir slíka nýtingu lands í skipulagsáætlun hlutaðeigandi sveitarfélags.
Öll önnur nýtingu á landi og landsréttindum innan þjóðlendna er háð leyfi hlutaðeigandi sveitarstjórnar. Þó þannig að sé nýtingin heimiluð til lengri tíma en eins árs þarf jafnframt samþykki ráðuneytisins skv. 3. mgr. 3. gr. laga nr. 58/1998. Samþykki ráðuneytisins þarf til að nýta námur og önnur jarðefni innan þjóðlenda óháð tímalengd.
Ráðherra til aðstoðar við stjórn og ráðstöfun réttinda innan þjóðlendna er samstarfsnefnd um málefni þjóðlendna. Í henni eiga m.a. sæti fulltrúar tveggja sveitarfélaga, sjá nánar um nefndina.
Almennar fyrirspurnir og erindi um nýtingu í þjóðlendum skal senda á [email protected].
Sjá einnig:
Lög og reglugerð
Lög nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afréttaReglugerð nr. 630/2023 um meðferð og nýtingu þjóðlendnaNefnd
Samstarfsnefnd um málefni þjóðlendnaVatnaskil í þjóðlendumálum, ráðstefna
Upptaka af ráðstefnu 12. mars 2026Stefna
Stefna um samþykki fyrir nýtingu lands og landsréttinda í þjóðlendumSkýrslur forsætisráðherra
Forsætisráðherra flytur Alþingi árlega skýrslu um ráðstöfun lands og landsréttinda innan þjóðlendna og tekjur af því í samræmi við lög um þjóðlendur.
Skýrsla lögð fyrir Alþingi 2026Skýrsla lögð fyrir Alþingi 2025Skýrsla lögð fyrir Alþingi 2023-2024Skýrsla lögð fyrir Alþingi 2022-2023Skýrsla lögð fyrir Alþingi 2021-2022Skýrsla lögð fyrir Alþingi 2020-2021Skýrsla lögð fyrir Alþingi 2019-2020Skýrsla lögð fyrir Alþingi 2018-2019Skýrsla lögð fyrir Alþingi 2017-2018Skýrsla lögð fyrir Alþingi 2016-2017Skýrsla lögð fyrir Alþingi 2015-2016Skýrsla lögð fyrir Alþingi 2014-2015Skýrsla lögð fyrir Alþingi 2013-2014Skýrsla lögð fyrir Alþingi 2012-2013Skýrsla lögð fyrir Alþingi 2011-2012Kynningar
Forsætisráðuneytið hefur staðið að kynningarfundum fyrir sveitarstjórnir um málefni þjóðlendna.
Kynning frá 2026, marsKynning frá 2023, vorKynning frá 2019, haustKynning frá 2019, vorKynning frá 2018, haustKynning frá 2017, haustKynning frá 2017, vorKynning frá 2014Kynning frá 2013Kynning frá 2012