Formennskuáætlun Íslands í Eystrasaltsráðinu 2026-2027
Ísland tekur við sem formennskuríki Eystrasaltsráðsins af Póllandi hinn 1. júlí 2026, á tímum djúpstæðra landfræðipólitískra áskorana á Eystrasaltssvæðinu.
Forsætisráðherrar Norðurlanda hafa markað framtíðarsýn fyrir norrænt samstarf til ársins 2030 um að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Til að ná því markmiði er lögð áhersla á græn, samkeppnishæf og félagslega sjálfbær Norðurlönd. Samstarfið í Norrænu ráðherranefndinni á að þjóna því markmiði og hafa verið samþykktar pólitískar áherslur og fjórtán samstarfsáætlanir ráðherranefndanna á mismunandi sviðum sem gilda fyrir tímabilið 2025-2030.
Samstarfsráðherra Norðurlanda er sá ráðherra í ríkisstjórnum Norðurlandanna sem fer með ábyrgð á norræna ríkisstjórnarsamstarfinu innan Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir hönd forsætisráðherra hvers lands.Nánar