Nefnd um stofnun miðhálendisþjóðgarðs
Þverpólítísk nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu var skipuð af umhverfis- og auðlindaráðherra í apríl 2018 í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.
Nefndinni er m.a. ætlað að skilgreina mörk þjóðgarðsins og setja fram áherslur um skiptingu landssvæða innan hans í verndarflokka. Þá er henni ætlað að fjalla um hugsanlegar aðkomuleiðir og þjónustumiðstöðvar, svæðisskiptingu og rekstrarsvæði og greina tækifæri með stofnun þjóðgarðs á byggðaþróun og atvinnulíf. Jafnframt er henni ætlað að gera tillögur að helstu áherslum í stjórnunar- og verndaráætlunum og atvinnustefnu fyrir þjóðgarðinn og lagafrumvarpi um þjóðgarðinn, þar sem m.a. er tekin afstaða til stjórnskipulags þjóðgarðsins. Loks skal nefndin setja fram áætlun um fjármögnun fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu.
Nefndin er skipuð eftirfarandi aðilum:
Án tilnefningar
Óli Halldórsson, formaður
Samkvæmt tilnefningu forsætisráðuneytis
Margrét Hallgrímsdóttir
Samkvæmt tilnefningu þingflokks Framsóknarflokksins
Líneik Anna Sævarsdóttir
Samkvæmt tilnefningu þingflokks Samfylkingar
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir
Samkvæmt tilnefningu þingflokks Pírata
Halldóra Mogensen
Samkvæmt tilnefningu þingflokks Miðflokksins
Bergþór Ólason
Samkvæmt tilnefningu þingflokks Flokks fólksins
Inga Sæland
Samkvæmt tilnefningu þingflokks Viðreisnar
Hanna Katrín Friðriksson
Samkvæmt tilnefningu þingflokks Vinstrihreyfingar- græns framboðs
Steingrímur J. Sigfússon
Samkvæmt tilnefningu þingflokks Sjálfstæðisflokks
Vilhjálmur Árnason
Samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
Valtýr Valtýsson,
Dagbjört Jónsdóttir
Við störf nefndarinnar verður haft samráð við helstu hagsmunaaðila og almannasamtök, s.s. náttúruverndarsamtök, útvistarsamtök og samtök hagsmunaaðila s.s. í ferðaþjónustu, landbúnaði og orkumálum.
Með nefndinni starfar Steinar Kaldal verkefnisstjóri, starfsmaður umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Hægt er að koma ábendingum til nefndarinnar með því að hafa samband við Steinar í gegn um netfangið [email protected].
Sjá einnig
Fundargerðir
1. fundur 7. maí 20182. fundur 31. maí 20183. fundur 14. ágúst 20184. fundur 4. september 20185. fundur 2. október 20186. fundur 22.október 20187. fundur 6. nóvember 20188. fundur 4. desember 20189. fundur 5. febrúar 201910. fundur 5. mars 201911. fundur 26. mars 201912. fundur 9. apríl 201913. fundur 2. maí 201914. fundur 28 maí 201915. fundur 4. júní 201916. fundur, 13. ágúst 201917. fundur 11. september 201918. fundur 24. september 201919. fundur 8. október 201920. fundur 22. október 201921. fundur 5. nóvember 201922. fundur 12. nóvember 201923. fundur 29. nóvember 2019Fundargögn
Glærur af kynningarfundi 4. júní 2018Glærur af 1. fundi nefndar 7. maí 2018Glærur af 2. fundi nefndar 31. maí 2018Glærur af 3. fundi nefndar 14. ágúst 2018Glærur af 4. fundi nefndar 4. september 2018Skipulagsmál á miðhálendinuÞjóðlendur og miðhálendiðGlærur af 6. fundi nefndar 22. október 2018Glærur af samráðsfundi 4. desember 2018Glærur af 7. fundi nefndar 6. nóvember 2018Glærur af 8. fundi nefndar 4. desember 2018Glærur af 9. fundi nefndar 5. febrúar 2019Glærur af 10. fundi nefndar 5. mars. 2019Glærur af 11. fundi nefndar 26. mars 2019Glærur af 12. fundi nefndar 9. apríl 2019Glærur af 13. fundi nefndar 2. maí 2019Kynningarfundur 20. maí 2019Glærur af 14. fundi nefndar 28. maí 2019Hagnýtar upplýsingar
Skýrsla: Hálendisþjóðgarður - Tillögur og áherslur nefndarAllar umsagnir úr samráðsgáttHlutverk og verndarflokkar þjóðgarðaNánar um hlutverk nefndarinnar- F
- Economic Impact of National Parks in Iceland; Case Study of Snæfellsjökull National Park
- National Parks: Assessment of benefits.
- The Economic Value of a National Park.
- The Socio-Economic Benefits of new National Park designations in Scotland.