Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
  1. október 2017 /
Utanríkisráðuneytið

Stjórnmálasamband tekið upp við Cook-eyjar

{image.Description}
Guðlaugur Þór og Henry Puna undirrita yfirlýsinguna
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Henry Puna, forsætisráðherra Cook-eyja, undirrituðu í dag yfirlýsingu um stjórnmálasamband landanna í Reykjavík. Puna kom hingað til lands til að taka þátt í Hringborði norðurslóða í Hörpu og áttu þeir Guðlaugur Þór stuttan fund í tengslum við undirritunina.