27. janúar 2023Utanríkisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið
27. janúar helgaður minningu fórnarlamba helfararinnar
Ákveðið hefur verið að 27. janúar ár hvert verði á Íslandi helgaður minningu fórnarlamba helfararinnar og þá verði vakin sérstök athygli á aðdraganda hennar og þeim hryllingi sem í henni fólst. Forsætisráðherra, utanríkisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra hafa sammælst um að hefja vinnu til þess að móta þær leiðir sem farnar verða í þessu augnamiði hér á landi.