31. mars 2021Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið
Ísland í efsta sæti Alþjóðaefnahagsráðsins um kynjajafnrétti tólfta árið í röð
Ísland mælist í efsta sæti á kynjajafnréttislista Alþjóðaefnahagsráðsins, (e; World Economic Forum) tólfta árið í röð. Skýrslan: Global Gender Gap Report kemur nú út í fimmtánda skiptið og tekur til 156 ríkja. Mælikvarðarnir taka til fjögurra meginsviða kynjajafnréttis: Stjórnmála, menntunar, atvinnu og heilbrigðis.