11. september 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Frumvörp sem hafa þýðingu fyrir fjölmarga landsmenn
Á þingmálaskrá félags- og húsnæðismálaráðherra fyrir komandi þingvetur eru fjölbreytt málefni sem snerta daglegt líf fólks um land allt, meðal annars leigjendur, launafólk, örorkulífeyrisþega, ellilífeyrisþega, fatlað fólk og innflytjendur. Alls hyggst Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, leggja fram 14 mál á Alþingi, þar af 13 frumvörp og eina þingsályktunartillögu.