- september 2026 /
Fjölbreyttir viðburðir í samgönguviku
Fjölbreyttir viðburðir verða að vanda á dagskrá í Evrópskri samgönguviku, sem hefst miðvikudaginn 16. september og stendur til 22. september, en þema vikunnar að þessu sinni er Samgöngur fyrir öll.
Frá árinu 2002 hafa borg og bæjarfélög á Íslandi tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu til að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið hefur umsjón með vikunni á Íslandi.
Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem eru allt í senn vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft. Með þema vikunnar að þessu sinni er þá lögð áhersla á að skapa aðgengilegt og öruggt samfélag fyrir alla – óháð aldri og hreyfigetu.
Viðburðir verða haldnir á vegum félagasamtaka og sveitarfélaga, en nálgast má upplýsingar um dagskrá vikunnar hér á vef Stjórnarráðsins, á heimasíðum sveitarfélaganna, auk Facebook-síðu vikunnar.
Meðal þeirra viðburða sem eru á dagskrá að þessu sinni má nefna Samgönguráðstefnu ITS sem fer fram á upphafsdegi samgönguviku, 16. september,
Þá býður Orkuveitan til Auðlindahrings í Elliðaárdalnum þann 17. september í tilefni af samgönguviku og þennan sama dag kl. 16 verða BMX Bros með námskeið og sýningu á Miðbæjartorginu í Mosfellsbæ.
Betri samgöngur og Almenningssamgöngur, áður Strætó, verða með opið hús frá 18. september frá kl. 14-16 í nýjum húsakynnum sínum í Hafnarstræti 7.
Formleg vígsla nýrrar hjóla- og göngubrúar yfir Elliðaár við Dimmu fer síðan fram 21. september kl. 9.30.
Vikan endar svo á Bíllausa deginum, 22. september, þegar almenningur er hvattur til þess að skilja bílinn eftir heima og til að auðvelda það verður frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu. Þennan sama dag mun Samgöngustofa standa fyrir Umferðaþingi þar sem athyglinni verður beint að unga fólkinu og umferðinni.