1. september 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra hitti forseta palestínska Rauða hálfmánans

{image.Description}
Rauði krossinn/Davíð Þór
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ásamt Dr. Younis Al-Khatib, forseta palestínska Rauða hálfmánans.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræddi við Dr. Younis Al-Khatib, forseta palestínska Rauða hálfmánans, í utanríkisráðuneytinu á dögunum. Forsetinn hafði þá fyrr um daginn átt fund með Martin Eyjólfssyni ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, en ráðuneytið hefur um árabil stutt við ýmis verkefni palestínska Rauða hálfmánans og annarra landsfélaga í gegnum rammasamning við Rauða Kross Íslands.

„Við ræddum hörmulega stöðu mannúðarmála í Palestínu og þau afar krefjandi verkefni sem samtökin standa frammi fyrir, en þau hafa sinnt lykilhlutverki við veitingu mannúðaraðstoðar á Gaza þrátt fyrir gífurlega erfiðar aðstæður,“ segir Þorgerður Katrín. „Ég notaði tækifærið og undirstrikaði áframhaldandi stuðning íslenskra stjórnvalda sem og samhug íslensku þjóðarinnar með palestínsku þjóðinni.“

Dr. Al-Khatib heimsótti landið í boði Rauða Kross Íslands til að vekja athygli á alvarlegri stöðu mannúðarmála í Palestínu og verkefnum palestínska Rauða hálfmánans, en samtökin reka meðal annars neyðarlínu, sjúkrabíla, sjúkrahús og heilsugæslustöðvar og annast dreifingu hjálpargagna. Hann átti sömuleiðis fund með Höllu Tómasdóttur forseta Íslands meðan á dvöl hans stóð hér á landi.

Þá var Dr. Al-Khatib aðalgestur á hádegisverðarfundi Alþjóðamálastofnunar og landsnefndar um mannúðarrétt, sem bar yfirskriftina Vernd og mannúð á átakasvæðum: Áskoranir og árangur í starfi palestínska Rauða hálfmánans, og talaði þar fyrir fullum sal í Þjóðminjasafninu. Að lokum var hann viðstaddur sérstaka sýningu á kvikmyndinni The Voice of Hind Rajab í Bíó Paradís, sem fjallar um símtal fimm ára stúlku við neyðarlínu palestínska Rauða hálfmánans í byrjun árs 2024 þegar hún og fjölskylda hennar létust í árás ísraelska hersins á bíl þeirra.

Dr. Younis Al-Khatib hefur verið forseti palestínska Rauða hálfmánans frá árinu 2000, en hann hefur tekið þátt í starfi samtakanna frá árinu samtakana allt frá árinu 1982 er hann gerðist fyrst sjálboðaliði.