1. september 2026 /
Innviðaráðuneytið

Nýjar leiðbeiningar um mat á áhrifum lagafrumvarpa á byggðarlög og búsetufrelsi

{image.Description}
Mynd/iStock

Innviðaráðuneytið hefur gefið út leiðbeiningar um hvernig meta skuli áhrif lagafrumvarpa á byggðarlög og frelsi til búsetu. Markmið leiðbeininganna er að styðja við vandaðan undirbúning löggjafar og stuðla að því að áhrif nýrra laga á búsetuskilyrði og byggðaþróun verði metin með markvissum og samræmdum hætti.

Lög og stjórnvaldsfyrirmæli geta haft veruleg áhrif á lífsgæði fólks, starfsemi fyrirtækja og þróun byggðarlaga. Við undirbúning lagafrumvarpa ber ráðuneytum að meta meðal annars áhrif þeirra á byggðarlög en hingað til hafa ekki legið fyrir sérstakar leiðbeiningar um hvernig slíkt mat skuli fara fram. Leiðbeiningarnar nýtast ráðuneytum og stofnunum sem vinna að gerð lagafrumvarpa en einnig fyrir stefnumótun, áætlanagerð og aðra ákvarðanatöku stjórnvalda.

Innviðaráðherra fól Byggðastofnun að vinna leiðbeiningarnar í samstarfi við innviðaráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið og dómsmálaráðuneytið. Útgáfa leiðbeininganna er liður í framkvæmd aðgerðar 11 í stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024-2028. Aðgerðin styður við markmið stjórnvalda um búsetufrelsi og að stefnt verði að eins sambærilegri þjónustu og búsetuskilyrðum og kostur er á um allt land.

Leiðbeiningarnar verða einnig birtar á vefsíðunni Vönduð löggjöf þar sem finna má leiðbeiningar, sniðmát og eyðublöð vegna undirbúnings löggjafar. Einnig verða þær kynntar sérstaklega fyrir starfsfólki Stjórnarráðsins sem kemur að vinnu við lagasetningu.