- september 2026 /
Reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna gefin út
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna. Markmið reglugerðarinnar er að setja í fyrsta sinn skýrar og samræmdar reglur um hvernig kortleggja skuli óbyggð víðerni á Íslandi.
Reglugerðin markar mikilvægt framfaraskref í náttúruvernd. Með skýrari skilgreiningum og sameiginlegum upplýsingagrunni verður auðveldara að meta áhrif framkvæmda á víðerni og taka ákvarðanir á traustari grunni, ekki síst þar sem áhrif á náttúru geta safnast upp með tímanum og í sumum tilvikum verið óafturkræf.
„Víðernin eru eitt af því sem gerir Ísland að Íslandi og það er á okkar ábyrgð að standa vörð um þau. Með þessari reglugerð stígum við löngu tímabært skref, með sameiginlegum og gagnsæjum grunni til að kortleggja víðernin og styðja okkur í ákvarðanatöku um vernd og nýtingu lands," segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Reglugerðin skýrir hvernig skilgreiningu náttúruverndarlaga á óbyggðum víðernum skuli beitt við kortlagningu. Þar eru meðal annars sett viðmið um áhrif mannvirkja og annarrar landnotkunar og tekið tillit til sýnileika mannvirkja og þess hvernig landslag getur dregið úr áhrifum þeirra. Til dæmis eru áhrif vindorkuvera metin þrefalt meiri en áhrif hefðbundins mannvirkis.
Hingað til hafa verið gerð ólík kort af óbyggðum víðernum eftir mismunandi aðferðum. Með reglugerðinni verður því til sameiginlegur og gagnsær rammi fyrir kortlagninguna og Náttúrufræðistofnun mun annast gerð og viðhald opinbers korts yfir óbyggð víðerni.
Kortlagningin er fyrst og fremst upplýsingagrunnur fyrir stjórnvöld. Hún felur ekki sjálfkrafa í sér bann við framkvæmdum eða takmörkun á landnotkun. Hún gefur hins vegar stjórnvöldum betri upplýsingar þegar teknar eru ákvarðanir um skipulag, landnýtingu og vernd landslags og náttúru.