- september 2026 /
Sóknargjöld hækkuð og aukið fé til viðhalds á friðuðum kirkjum
Lagt er til í fjárlagafrumvarpi næsta árs að sóknargjöld verði hækkuð um 200 milljónir og 75 milljónum verði veitt aukalega til húsfriðunarsjóðs til að standa straum af viðhaldsþörf á friðuðum kirkjubyggingum um land allt.
Með tillögunum er brugðist við áralöngu ákalli um hækkun sóknargjalda, en þau hafa verið lægri en sú reikniregla sem lög um sóknargjöld gera ráð fyrir.
„Þetta er mikið fagnaðarefni. Sóknargjöld standa undir mikilvægu starfi trúfélaga um land allt og það hefur lengi verið kallað eftir því að fjármögnunin verði styrkt og gerð fyrirsjáanlegri,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Tillögurnar byggja á vinnu starfshóps sem skipaður var árið 2024 af þáverandi dómsmálaráðherra um endurskoðun fyrirkomulags sóknargjalda . Talsverðar mannabreytingar urðu á starfshópnum frá því að hann var skipaður. Á fundi með ráðherra í byrjun árs kynnti hópurinn tillögur sínar til að bregðast við viðvarandi niðurskurði sóknargjalda síðustu ár.
Fyrirsjáanlegri fjármögnun sóknargjalda
Allt frá árinu 2008 hafa árlega komið inn bráðabirgðaákvæði í lög um sóknargjöld um lægri sóknargjöld en reikniregla laganna gerir ráð fyrir.
Í frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027 er svo lagt til að fjárhæð sóknargjalds hækki úr 1.221 krónu í 1.270 krónur fyrir hvern einstakling á mánuði. Ný upphæð á að uppfærast ár hvert í samræmi við almennar verðlagsforsendur fjárlaga og fjölda greiðenda sóknargjalda í lok næstliðins árs.
Breytingin á þannig að stuðla að fyrirsjáanlegri fjármögnun til framtíðar.
Aukið fé til friðaðra kirkna
Víða um land er umtalsverð viðhaldsþörf á friðuðum kirkjum sem gegna mikilvægu hlutverki í menningar- og byggingarsögu landsins. Starfshópurinn lagði því til að húsfriðunarsjóður yrði efldur með varanlegu viðbótarfjármagni sem eyrnamerkt yrði kirkjubyggingum og er í fjárlagafrumvarpinu gert ráð fyrir 75 milljóna króna viðbótarframlagi.
Tillögurnar voru teknar til skoðunar í dómsmálaráðuneytinu í samvinnu við fjármála-og efnahagsráðuneytið og umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið með fyrrgreindri niðurstöðu.