NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Utanríkisráðuneytið
Nr. 024, 31. mars 1998:Utanríkisráðherra kynnir álit nefndar um framtíð utanríkisþjónustunnar.
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________
Nr. 24
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun álit nefndar um framtíð utanríkisþjónustunnar. Utanríkisráðherra gerir grein fyrir helstu tillögum nefndarinnar í yfirlitsræðu sinni um utanríkismál á Alþingi í dag. Nefndarálitinu verður dreift til fjölmiðla og hægt er að fá eintak af því í utanríkisráðuneytinu, Rauðarárstíg 25, Reykjavík.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 31. mars 1998.