NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Leyfilegur heildarafli í síld. 26.01.99


Fréttatilkynning

Leyfilegur heildarafli í síld


Í tillögum Hafrannsóknastofnunarinnar síðasta vor um leyfilegan heildarafla í síld fyrir yfirstandandi fiskveiðiár kom fram að um bráðabirgðatillögu væri að ræða, sem endurskoðuð yrði næsta haust. Ráðuneytinu hefur nú borist endanleg tillaga frá Hafrannsóknastofnuninni og er lagt til að leyfilegur heildarafli verði óbreyttur.

Ráðuneytið mun fara að tillögu stofnunarinnar.


Sjávarútvegsráðuneytið
26. janúar 1999