NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Sjávarútvegsráðherra heimsækir Austurland. 11.08.99


Fréttatilkynning

Sjávarútvegsráðherra heimsækir Austurland


Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra heimsækir Austfirði í dag miðvikudag og á morgun fimmtudag en þetta er þriðja heimsókn hans í röð heimsókna um landið í sumar og haust. Ráherra mun hitta fulltrúa stéttarfélaga og heimsækja útgerðarfyrirtæki.

Í dag mun Árni byrja á því að heimsækja Siknney á Reyðarfirði. Að því loknu mun hann eiga fundi með Alþýðusambandi Austurlands, Skipstjóra- og stýrimannafélagi Austurlands og Félagi smábátaeigenda á Austurlandi.

Á morgun, fimmtudag mun ráðherra kynna sér starfsemi fjölda útgerðarfyrirtækja á Breiðdalsvík, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði, Eskifirði og Seyðisfirði. Að lokum mun ráðherra eiga fund með Útvegsmannafélagi Austurlands.

Sjávarútvegsráðuneytið
11. ágúst 1999