NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Bráðabirgðaaukning á loðnukvóta. 02.02.01
Fréttatilkynning
Á síðasta vori var ákveðið að bráðabirgðakvóti á loðnu á yfirstandandi loðnuvertíð yrði 650 þús. lestir og var þá gert ráð fyrir að endanlegur heildarkvóti vertíðarinnar yrði ákveðinn, að loknum mælingum um áramótin. Að undanförnu hafa staðið yfir mælingar á stærð loðnugöngunnar á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar og er niðurstöðu úr þeim mælingum að vænta í næstu viku. Samkvæmt þeim mælingum, sem þegar liggja fyrir, er ljóst að kvótinn verður aukinn um a.m.k. 200 þús. lestir og hefur ráðuneytið ákveðið, til bráðbirgða, að kvóti íslensku skipanna verði aukinn um það magn, sem skiptist milli þeirra samkvæmt aflahlutdeild þeirra. Ákvörðun þessi er tekin til að koma í veg fyrir að skip þurfi að stöðva veiðar meðan endalegra tillagna er beðið, en fyrir liggur að nokkur skip hafa þegar veitt kvóta sína. Endanlegt heildarmagn íslensku skipanna verður ákveðið að loknum mælingum.
Sjávarútvegsráðuneytið
2. febrúar 2001.