NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Reglugerð um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga

Samkvæmt 74. gr sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 hefur félagsmálaráðherra sett reglugerð nr. 374/2001 um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Reglugerðin hefur verið sett í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og var undirrituð af ráðherra þann 3. maí sl.

Reglugerðin fjallar um mat á fjárhagsstöðu sveitarfélaga, fjármálalegt eftirlit eftirlitsnefndar og málsmeðferð. Í reglugerðinni er að finna þær lykiltölur sem nefndinni er ætlað að reikna út og bera saman við viðmið sem árlega verða sett í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga.


Þessi tenging er ekki vistuð á heimasíðu félagsmálaráðuneytisinsReglugerð um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga nr. 374/2001