NOTE: This article is more than 5 years old.
17. september 2001
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Námsmenn og fatlaðir einstaklingar eiga nú rétt á húsaleigubótum

Fatlaðir einstaklingar á sambýlum og námsmenn á framhalds- eða háskólastigi sem leigja á heimavist eða á stúdentagörðum eiga nú rétt á húsaleigubótum sem þeir áttu ekki áður skv. lögum um húsaleigubætur.

Þessi breyting nr. 52/2001, á lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997, tók gildi þann 13. júní sl. Frekari upplýsingar um þetta er hægt að nálgast á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins: www.felagsmalaraduneyti.is



Samráðsnefnd um húsaleigubætur
félagsmálaráðuneytinu, 13. september 2001