NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Innviðaráðuneytið

Flugþing haldið í október

Samgönguráðuneytið og Flugmálastjórn Íslands halda flugþing á Hótel Loftleiðum fimmtudaginn 23. október, undir yfirskriftinni Flug í heila öld, saga og framtíð flugsins.

Mörg fróðleg erindi verða flutt á flugþinginu, m.a. af fulltrúum Boeing og Airbus verksmiðjanna, íslenskra flugrekenda, Smithsonian Air and Space Museum og fleiri. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Flugmálastjórnar þar sem skráning fer einnig fram.