NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Heilbrigðisráðuneytið

Sykursýki vegna offitu er í vaxandi mæli ástæða örorku hjá körlum


Algengi örorku vegna sykursýki hefur aukist verulega meðal karla á undanförnum árum en á sama tíma hefur ekki orðið marktæk aukning hjá konum. Þetta er niðurstaða rannsóknar Sigurðar Thorlaciusar tryggingayfirlæknis og fleiri lækna sem kynnt var á ráðstefnu um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum sem nú stendur yfir í Öskju, náttúruvísindahúsi Háskóla Íslands. Sagt er frá rannsókninni á heimasíðu Tryggingastofnunar ríkisins.