Auglýsing um réttindanám og próf til löggildingar fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur falið prófnefnd löggiltra fasteignasala að efna til réttindanáms fyrir þá sem vilja öðlast löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasalar skv. lögum nr. 99/2004, um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu, og reglugerð nr. 837/2004, um námskeið og prófraun til að öðlast löggildingu til sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa. Námið hefst í febrúar 2006. Umsjón með náminu hefur Endurmenntun Háskóla Íslands.
Námið skiptist í 3 hluta sem kenndir eru á þremur misserum, alls 30 einingar á háskólastigi, og lýkur hverjum hluta með prófum. Heimild til að þreyta próf öðlast þeir er: a) setið hafa námskeið sem haldið er skv. 4. gr. laga nr. 99/2004, um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu, b) hafa að baki að minnsta kosti tólf mánaða ráðningartíma í fullu starfi hjá löggiltum fasteignasala og c) hafa lokið stúdentsprófi eða hafa sambærilega menntun að mati prófnefndar.
Námið verður því aðeins haldið að næg þátttaka fáist. Kostnaður vegna náms og prófa er í heild 550.000 kr. sem skiptist í þrjá hluta og greiðist hver hluti í upphafi hvers misseris.
Umsóknir um þátttöku er að finna á heimasíðu Endurmenntunar HÍ: www.endurmenntun.is og skulu þær berast í síðasta lagi 15. desember n.k.
Reykjavík, 11. nóvember 2005
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið.