NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Hafrannsóknir efldar á næstu árum

Fréttatilkynning

úr sjávarútvegsráðuneyti

 

Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra kynnti á blaðamannafundi í dag um ráðstöfun fjár úr Verkefnasjóði sjávarútvegsins.

 

Í fjárlögum næsta árs er lagt til að framlög til  Hafrannsóknarstofnunar aukin um 50 milljónir króna og síðan um 100 milljónir króna frá og með fjárlögum ársins 2007.

 

Jafnframt er úthlutunarreglum Verkefnasjóðs sjávarútvegsins breytt þannig að á næsta ári fari að minnsta kosti 25 milljónir króna, af því fé sem sjóðurinn hefur til úthlutunar, til hafrannsókna á samkeppnisgrundvelli. Auglýst verður eftir umsóknum og mun faghópur meta þær út frá vísindalegu gildi verkefnanna.

 

Með þessu næst tvennt;  hafrannsóknir á vegum Hafrannsóknarstofnunarinnar verða auknar í kjölfar hærri fjárveitinga og þeir sem starfa utan stofnunarinnar og hafa haft takmarkaðan aðgang að styrkjum gefst færi á að sækja um til Verkefnasjóðs til að stunda hafrannsóknir.

 

Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafrannsóknarstofnunar segir ánægjulegt að verið sé að styrkja fjárramma stofnunarinnar í framtíðinni. Hafrannsóknarstofnunin hyggist á næsta ári efla rannsóknir á vistkerfi Íslandshafs, frá Grænlandssundi norður og austur um land og leggja sérstaka áherslu á loðnurannsóknir. Þetta séu brýnar rannsóknir m.a. í ljósi breytinga á umhverfi sjávar undanfarin ár.  

 

Þessari ráðstöfun fjár til hafrannsókna til frambúðar fylgir að Verkefnasjóður sjávarútvegsins leggur  660 milljónir króna, sem upprunnar voru í Þróunarsjóði, í ríkissjóð. Unnið er að uppgjöri sjóðsins en eignir hans í lok starfstíma hans byggðust á greiðslu sjávarútvegsfyrirtækja til sjóðsins.

 

11. nóvember 2005