NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Forsætisráðuneytið
Ráðherraskipti 7. mars 2006
Frá ríkisráðsritara
Á fundi ríkisráðs á Bessastöðum í dag veitti forseti Íslands Árna Magnússyni lausn frá embætti félagsmálaráðherra. Forseti Íslands veitti Jóni Kristjánssyni lausn frá embætti heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og skipaði hann í embætti félagsmálaráðherra. Þá skipaði forseti Íslands Siv Friðleifsdóttir alþingismann ráðherra í ríkisstjórn Íslands og fer hún með heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
Reykjavík 7. mars 2006