Fræðslufundir í framhaldsskólum um málefni fatlaðra

Menntamálaráðherra og félagsmálaráðherra hafa ákveðið að styrkja Freyju Haraldsdóttur til að heimsækja framhaldsskóla og fræða nemendur og starfsfólk um málefni fatlaðs fólks. Fyrirlestrana nefnir Freyja: Það eru forréttindi að lifa með fötlun. Freyja, sem er mikið líkamlega fötluð ung stúlka, útskrifaðist sem stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í desember 2005 eftir þriggja og hálfs árs nám og var hún dux scholae.
Markmið Freyju með fyrirlestrunum eru m.a. að:
- opna augu nemenda fyrir heimi fatlaðs fólks
- skapa grundvöll umræðu við starfsfólk um skóla fyrir alla
- benda á að með réttri þjónustu og viðhorfum sé ekkert böl að lifa með fötlun.
Öllum framhaldsskólum verður boðið að fá Freyju í heimsókn í vetur. Freyja mun bjóða upp á sérstaka fyrirlestra fyrir starfsfólk og aðra fyrir nemendur. Fyrirkomulag verður ákveðið í samráði við hvern skóla.
Fulltrúar fjölmiðla eru boðnir velkomnir að vera við formlega opnun í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, fimmtudaginn 5. október kl. 12 á hádegi. Þar flytja ávörp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Þorsteinn Þorsteinsson skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ og Freyja segir frá markmiðum sínum með fyrirlestraferðinni. Ráðherra opnar síðan vef verkefnisins.