NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Svar um rétt nemenda í framhalds- og háskólanámi til húsaleigubóta

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur svarað fyrirspurn Jóns Bjarnasonar alþingismanns um rétt nemenda í framhalds- og háskólanámi til húsaleigubóta.

Ráðherra benti á að fyrir lægju tillögur samráðsnefndar um húsaleigubætur um þetta efni meðal annars. Hins vegar stæði út af að samkomulag takist milli ríkis og Sambands íslenskra sveitarfélaga um fjármögnun og ábyrgð á greiðslu á viðbótarkostnaði.