NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigði og forvarnir í sókn - með samtakamætti landsmanna

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur mótað stefnu í forvarnarmálum undir kjörorðinu: Heilbrigði og forvarnir í sókn – með samtakamætti landsmanna. Markmiðið er að tryggja að sjónarmiða lýðheilsu verði gætt í ríkari mæli en verið hefur við alla stefnumótun og ákvarðanatöku í samfélaginu. Stefnumótunin byggir á heilbrigðisáætlun til 2010 og ítarlegri aðgerðaáætlun Lýðheilsustofnunar á þessu sviði og er gert ráð fyrir að nota 50-60 milljónir króna á þessu ári til að vinna að framgangi málsins.