NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Ráðherra í veikindaleyfi
Vegna inflúensu verður Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra í veikindaleyfi fram í næstu viku. Herdís Á. Sæmundardóttir varaþingmaður tekur sæti Magnúsar á Alþingi í fjarveru hans.
Læknar hafa ráðlagt félagsmálaráðherra að taka sér hvíld uns honum er batnað af inflúensunni en talið er að samspil hennar og langvarandi álags hafi komið niður á heilsu ráðherra. Líðan hans er að öðru leyti góð.