NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Nýir formenn innflytjendaráðs og flóttamannanefndar
Félagsmálaráðherra hefur skipað Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmann félagsmálaráðherra, formann innflytjendaráðs í stað Sæunnar Stefánsdóttur, fyrrum alþingismanns. Amal Tamimi, starfsmaður í Alþjóðahúsi, hefur verið skipuð varaformaður.
Þá hefur félagsmálaráðherra skipað Guðrúnu Ögmundsdóttur, fyrrverandi alþingismann, formann flóttamannanefndar í stað Árna Gunnarssonar. Ingibjörg Broddadóttir, deildarstjóri í félagsmálaráðuneyti, hefur verið skipuð varaformaður.