NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa, einkum á skrifstofu alþjóðamála.

SÉRFRÆÐINGUR

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa, einkum á skrifstofu alþjóðamála.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf á sviði lög-, hag-, sjávarútvegs- og stjórnmálafræði eða skyldum greinum
  • Framhaldsmenntun er kostur
  • Reynsla og/eða þekking á sviði sjávarútvegs   er kostur
  • Reynsla og/eða þekking á alþjóðasamskiptum er kostur
  • Hæfni til greiningar á flóknum viðfangsefnum
  • Mjög góð enskukunnátta
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til sjálfstæðra og skipulagðra vinnubragða

 

 Helstu verkefni snúa að málum er varða:

  • Svæðisbundna samninga um stjórn veiða úr deilistofnum
  • Tvíhliða fiskveiðisamninga
  • Haf- og þjóðréttarmál
  • Sjávarspendýr
  • Milliríkjasamstarf varðandi líffræðilegan fjölbreytileika
  • Hnattrænt samstarf á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og Matvæla- og landbúnaðarstofnunar S.þ. (FAO)

 

 Við hvetjum konur jafnt sem karla til þess að sækja um starfið.

 

Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected])

og Tómas Oddur Hrafnsson ([email protected]) hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 17. desember nk. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is