NOTE: This article is more than 5 years old.
21. apríl 2008
/
Forsætisráðuneytið
Fundir forsætisráðherra í Bretlandi
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, mun eiga fund með Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, í Lundúnum nk. fimmtudag. Gert er ráð fyrir að þeir ræði alþjóðleg efnahagsmál, öryggismál og orkumál. Forsætisráðherra mun einnig funda með David Cameron, leiðtoga breska Íhaldsflokksins á morgun, þriðjudag.
Reykjavík 21. apríl 2008