Málþing um heimilislausar konur
Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, lagði áherslu á samfélagslega ábyrgð og skyldur þegar hún fjallaði um aðstæður heimilislausra á málþingi um heimilislausar konur sem haldið var í dag.
Ráðherra sagði meðal annars:
„Hver manneskja er dýrmæt og opinberir aðilar hafa skyldur til að beita samfélagslegum úrræðum til að hjálpa þeim til sjálfsbjargar sé þess nokkur kostur. Munum líka að það kveikir ekki bara lífsneistann sem dugir til að hjálpa þessum konum til sjálfshjálpar heldur veitir aðstandendum og börnum vonina um leið og við spörum í heilbrigðis- og félagslega kerfinu. Styðja þarf alla viðleitni fólks sem sýnir vilja til að fóta sig í samfélaginu á nýjan leik en þarf til þess tímabundinn stuðning. Það er grundvallaratriði.“
Ávarp Jóhönnu Sigurðardóttur á málþingi um heimilislausar konur