NOTE: This article is more than 5 years old.
20. ágúst 2008
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Neyðarkort fyrir konur sem sæta ofbeldi

Gefið hefur verið út neyðarkortið Við hjálpum, ætlað konum í nánum samböndum sem sæta ofbeldi og þurfa að leita sér hjálpar. Að útgáfu kortsins stendur samráðsnefnd félags- og tryggingamálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis, menntamálaráðuneytis, dómsmálaráðuneytis, Jafnréttisstofu og Sambands íslenskra sveitarfélaga, en nefndin hefur með höndum að hrinda í framkvæmd áætlun um aðgerðir vegna ofbeldis gegn konum í nánum samböndum.

Upplýsingar á kortinu, sem er á stærð við nafnspjald, eru á fimm tungumálum, þ.e. íslensku, ensku, pólsku, rússnesku og taílensku. Fyrirsögn kortsins er „Við hjálpum“ og þar eru birt símanúmer Neyðarlínu, Kvennaathvarfsins, Stígamóta, Neyðarmóttöku vegna nauðgunar og Hjálparsíma Rauða kross Íslands.

Kortin verða send víðs vegar um landið, á heilsugæslustöðvar, félagsþjónustu sveitarfélaga, félagsmiðstöðvar, í sundlaugar, á bókasöfn og svæðisskrifstofur málefna fatlaðra.

Skjal fyrir Acrobat ReaderHjálpum þeim neyðarkortið (PDF, 234KB)

Skjal fyrir Acrobat ReaderAðgerðaáætlun vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis (PDF, 239KB)