NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Innviðaráðuneytið
Tvær stöður skrifstofustjóra lausar hjá samgönguráðuneytinu
Vegna skipulagsbreytinga eru lausar til umsóknar tvær stöður skrifstofustjóra hjá samgönguráðuneytinu. Umsóknarfrestur er til 16. febrúar næstkomandi. Umsækjendur eru beðnir að fylla út umsóknir á vefsíðunni: hagvangur.is.
Stöðurnar eru annars vegar skrifstofustjóri samgönguskrifstofu og hins vegar skrifstofustjóri samskiptaskrifstofu. Á samgönguskrifstofu er meðal annars unnið að stefnumótun og áætlanagerð í samgöngumálum og á samskiptaskrifstofu er meðal helstu verkefna vinna við stefnumótun og áætlanagerð í fjarskiptamálum.
Hæfniskröfur sem eiga við bæði störfin eru eftirfarandi:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Meistarapróf eða sambærileg gráða er nauðsynleg
- Reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg
- Reynsla og hæfileiki til að miðla upplýsingum
- Haldbær reynsla af áætlanagerð og verkefnisstjórn
- Frumkvæði og samskiptahæfni
Upplýsingar veita Ari Eyberg, [email protected] og Elísabet Sverrisdóttir, [email protected].