NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Rannsókn á ofbeldi gegn konum

Fyrirvari - 2. júlí 2010
Rannsóknin er í nánari vinnslu. Endanlegar niðurstöður munu liggja fyrir í ágúst 2010 og ber að líta á niðurstöður sem hér eru settar fram í því ljósi.

-   -   -   -

Um 42% kvenna á Íslandi hafa sætt ofbeldi einhvern tíma á ævinni frá 16 ára aldri. Með ofbeldi er átt við líkamlegt ofbeldi, hótanir og kynferðislega snertingu sem veldur mikilli vanlíðan. Ætla má að um 2.400 konur hafi verið beittar líkamlegu ofbeldi á síðustu 12 mánuðum. Rúm 60% kvennanna sem beittar voru ofbeldi töldu gerandann hafa verið undir áhrifum áfengis, fíkniefna eða lyfja.

Þetta kemur fram í viðamikilli könnun á ofbeldi karla gegn konum sem félags- og tryggingamálaráðuneytið fól Rannsóknasetri í barna- og fjölskylduvernd við Háskóla Íslands að gera sem hluta af aðgerðaáætlun vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis. Tekið var 3.000 manna slembiúrtak úr Þjóðskrá meðal kvenna á aldrinum 18–80 ára og rætt við þær í síma í september–desember 2008. Svarhlutfall var 68%.

Ásta R. Jóhannesdóttir, félags og tryggingamálaráðherra, segir að „heimilisofbeldi sé óhugnanleg birtingamynd kúgunar og valdbeitingar. Forsenda þess að ná árangri í baráttunni gegn ofbeldi karla gegn konum sé að þekkja staðreyndir að baki svo hægt sé að efla hjálparaðgerðir. Rannsóknin nú sé mikilvægur liður í þeirri baráttu því ofbeldi sé ekki hægt að líða og gegn því verður að berjast með öllum ráðum.“

Samanburður við önnur lönd

Spurningakönnunin er byggð á alþjóðlegum grunni (The International Violence against Women Survey) sem gerir kleift að bera saman stöðu kvenna hér á landi við önnur lönd. Samanburður sýnir að fleiri konur eru beittar ofbeldi á Íslandi en í Póllandi, Hong Kong og Filippseyjum en færri konur eru beittar ofbeldi á Íslandi ef miðað er við Ástralíu, Tékkland og Kostaríka.

Ofbeldi í nánum samböndum

Rannsóknin beindist meðal annars að umfangi og alvarleika ofbeldis gegn konum í nánum samböndum. Um 22% kvenna sögðust einhvern tíma á ævinni hafa verið beittar ofbeldi af maka eða fyrrverandi maka. Af þeim sögðust 26% hafa verið í lífshættu þegar þær voru síðast beittar ofbeldi og 41% þeirra sagði að sér hefi verið unnið líkamlegt mein.

Meðganga er áhættuþáttur ofbeldis í nánum samböndum en um 5% kvennanna voru barnshafandi þegar síðasta ofbeldisatvikið átti sér stað.

Kannað var hversu algengt sé að börn verði vitni að því að mæður þeirra séu beittar ofbeldi en vitað er að það getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir börnin. Niðurstöður benda til að um fjórðungur barna þar sem ofbeldi á sér stað í nánum samböndum hafi orðið vitni að atvikinu.

Um 19% kvennanna höfðu upplifað ofbeldi þar sem fyrrverandi maki var gerandi en um 5% höfðu orðið fyrir ofbeldi í núverandi sambandi. Niðurstöður leiddu í ljós að í flestum tilvikum batt skilnaður endi á ofbeldið og ljóst er að mörgum konum hefur tekist að losa sig úr ofbeldissamböndum.

Tilkynningar til lögreglu

Aðeins 13% kvenna sem beittar voru ofbeldi höfðu tilkynnt það lögreglu. Þær sem gerðu það ekki sögðu ýmist að þær hefðu ekki talið ofbeldið nógu alvarlegt, ekki hugsað út í að tilkynna það, talið skammarlegt að hafa orðið fyrir ofbeldinu eða kennt sjálfum sér um. Þá kom fram að konur sem höfðu tilkynnt ofbeldið fannst að lögreglan hefði mátt hlusta á þær af meiri alvöru.

Um könnunina

Könnunin er veigamikill liður í fjögurra ára áætlun stjórnvalda um aðgerðir til að vinna gegn ofbeldi á heimilum og kynferðislegu ofbeldi sem gildir til ársins 2011. Á næstunni verður birt skýrsla með niðurstöðum könnunarinnar í heild en höfundar hennar eru Jóhanna Rósa Arnardóttir, Guðrún Kristinsdóttir og Heiða Björk Vigfúsdóttir. Einnig eru væntanlegar niðurstöður úr annarri rannsókn á umfangi ofbeldis þar sem byggt er á viðtölum við starfsfólk félagsþjónustu og barnaverndar.

Skjal fyrir Acrobat ReaderSamantekt um rannsókn á ofbeldi gegn konum (PDF, 41KB)

Fyrirvari - 2. júlí 2010

Rannsóknin er í nánari vinnslu. Endanlegar niðurstöður munu liggja fyrir í ágúst 2010 og ber að líta á niðurstöður sem hér eru settar framí því ljósi.