NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Innviðaráðuneytið

Nýir skrifstofustjórar skipaðir í samgönguráðuneyti

Samgönguráðherra hefur skipað tvo nýja skrifstofustjóra í samgönguráðuneytinu til næstu fimm ára. Karl Alvarsson lögfræðingur verður skrifstofustjóri samgönguskrifstofu og Sigurbergur Björnsson verkfræðingur verður skrifstofustjóri samskiptaskrifstofu.

Karl Alvarsson lögfræðingur hefur starfað í samgönguráðuneytinu frá árinu 2003. Hefur hann gegnt stöðu sérfræðings og var síðar settur skrifstofustjóri. Karl hefur þegar tekið við embættinu.

Sigurbergur Björnsson hefur starfað í samgönguráðuneytinu frá árinu 2001. Hann var skrifstofustjóri skrifstofu fjarskipta og öryggismála samgangna en hefur undanfarin þrjú ár starfað sem fulltrúi ráðuneytisins í Brussel. Sigurbergur kemur til starfa í ráðuneytinu í sumar.

Nýtt skipurit samgönguráðuneytisins tók gildi 1. febrúar síðastliðinn þegar skrifstofum ráðuneytisins var fækkað, málefni flutt milli skrifstofa og verkaskipting gerð skýrari. Í framhaldi af því voru stöður tveggja skrifstofustjóra auglýstar og bárust kringum 60 umsóknir um hvora stöðu.

Nöfn fjögurra skrifstofa samgönguráðuneytisins og verkefni þeirra eru eftirfarandi:


  • Stjórnsýslu og fjármálaskrifstofa. Sér um almennan rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins, fjárlagagerð, árangursstjórnun, lögfræði og stjórnsýslu.

  • Samskiptaskrifstofa. Innviðir fjarskipta, fjarskiptaáætlun, öryggismál, upplýsingasamfélagið, póstmál og fjarskiptasjóður.

  • Samgönguskrifstofa. Innviðir samgangna, samgönguáætlun, flutningar, öryggi, slysarannsóknir, almenningssamgöngur.

  • Skrifstofa sveitastjórnarmála. Undir hana fellur einnig Jöfnunarsjóður sveitarfélaga sem er sjálfstæð eining undir stjórn forstöðumanns. Helstu verkefni eru varðandi tekjustofna, kosningar, verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og sameiningu sveitarfélaga.