NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Innviðaráðuneytið

Samgönguráðherra afhenti skipunarbréf

Kristján L. Möller samgönguráðherra afhenti í gær Karli Alvarssyni lögfræðingi skipunarbréf sem skrifstofustjóri samgönguskrifstofu samgönguráðuneytisins.

Karl var valinn úr hópi fjölmargra umsækjenda um stöðuna og er skipaður í embættið til fimm ára. Meðal verkefna samgönguskrifstofu eru innviðir samgangna, umsjón samgönguáætlunar, flutningar, almenningssamgöngur, slysarannsóknir og öryggismál.


Karli Alvarssyni skrifstofustjóra afhent skipunarbréf.  
Kristján L. Möller afhendir Karli Alvarssyni skipunarbréf sem skrifstofustjóri samgönguskrifstofu.