NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Umsóknarfrestur opinn, vistvæn nýsköpun, bættar framleiðsluaðferðir.

Auglýstur hefur verið umsóknarfrestur fyrir vistvæna nýsköpun (Eco-Innovation) undir Samkeppnis- og Nýsköpunaráætlun ESB (CIP). Í ár eru um 30 milljónir Evra til að fjármagna ný verkefni. Fresturinn er til kl. 17:00 að staðartíma í Brussel þann 10. september 2009.

Verkefnin skulu snúast um nýja tækni, vörur eða framleiðsluaðferðir í atvinnugreinum þar sem umtalsverðir möguleikar eru á betrumbótum, t.d í matar- og drykkjarframleiðslu og byggingariðnaði.

Áhersla verður lögð á verkefni sem komin eru á markaðsstig þ.e. tækni, vöru eða framleiðsluaðferðir sem sýnt hefur verið fram á að virki tæknilega en ekki tekist að koma í notkun á markaðinum enn sem komið er. Verkefnin skulu ennfremur miða að því að minnka umhverfisáhrif eða betrumbæta frammistöðu fyrirtækja í umhverfismálum.

Sjá nánar á eftirfarandi heimasíðum: