NOTE: This article is more than 5 years old.
1. september 2009
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Auglýsing um úthlutun aflaheimilda til áframeldis á þorski á fiskveiðiárinu 2009/2010

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra auglýsir eftir umsóknum um úthlutun aflaheimilda til áframeldis á þorski, sbr. reglugerð nr. 736/2009, um úthlutun aflaheimilda í þorski vegna tilrauna við föngun fisks til áframeldis og framkvæmd þess.

Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 15. september 2009.

Umsóknum skal skila til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík og einnig skal senda umsóknir með rafrænum hætti á netfangið [email protected]

Umsóknir skulu merktar sem ,,Þorskeldiskvóti“.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 1. september 2009.