NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Dómsmálaráðuneytið

Setning ráðuneytisstjóra framlengd

Setning Þórunnar J. Hafstein, skrifstofustjóra dómsmála- og löggæsluskrifstofu ráðuneytisins, í embætti ráðuneytisstjóra hefur verið framlengd til 31. desember 2009 vegna framlengds veikindaleyfis Þorsteins Geirssonar ráðuneytisstjóra. Bryndísi Helgadóttur, settum skrifstofustjóra lagaskrifstofu, hefur einnig verið falið að vera áfram staðgengill ráðuneytisstjóra til sama tíma. Þá mun Haukur Guðmundsson áfram stýra dómsmála- og löggæsluskrifstofu.