NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason fundar á Selfossi vegna eldgossins í Eyjafjallajökli

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun í kvöld 16. maí 2010 funda á Selfossi með hluta samráðhóps ráðuneytisins vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Á fundinn mæta auk ráðherra, aðstoðarmanns og ráðuneytisstjóra sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, yfirdýralæknir, framkvæmdstjóri Búnaðarsambands Suðurlands, landgræðslustjóri og sveitarstjóri Rangárþings-eystra.

Fundarefni verður að fara yfir stöðu mála eins og hún er metin núna og ræða síðan mögulegar aðgerðir sem til framkvæmda geta komið á næstunni og snerta landbúnað á þeim svæðum sem orðið hafa verst úti.

Ljóst er að eftir því sem að eldgosið og tilheyrandi öskufall dregst á langinn er mögulegt að grípa þurfi til mun umfangsmeiri aðgerða vegna landbúnaðar á svæðinu en áður var talið. Sérstaklega þarf að skoða stöðu sauðfjárbænda þar sem að sauðburði er víða að ljúka en allt fé enn á húsi sem ekki getur gengið til lengdar.

Bregðast þarf strax við þessari stöðu sem upp er komin.