NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Forsætisráðuneytið
Heimsókn yfirmanns herafla NATO

Forsætisráðherra fundaði í dag með yfirmanni herafla Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Evrópu, James G. Stavridis. Rætt var um leiðtogafund NATO sem forsætisráðherra mun sækja og haldinn verður í Lissabon 19.-20. nóvember næstkomandi. Á fundinum í Lissabon mun framkvæmdastjóri NATO m.a. kynna tillögur að nýrri grundvallarstefnu bandalagsins.
Reykjavík 5. nóvember 2010