NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-desember 2010

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir árið 2010 liggur nú fyrir.

Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 73,7 ma.kr. en var neikvætt um 150,4 ma.kr. á sama tímabili 2009.

Tekjur reyndust um 47,3 ma.kr. hærri en í fyrra á meðan að gjöldin drógust saman um 20,5 ma.kr. milli ára.

Þetta er mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um 95,4 ma.kr.