NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Húsgagnasýningin 10+ ... það leynast tækifæri undir hverjum lampa og stól


Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Færni og frumleiki íslenskra húsgagna- og innanhússarkitekta er rækilega staðfestur á húsgagnasýningunni 10+ sem er hluti af HönnunarMars og haldin er á Grandagarði 16. Sýningin endurspeglar þann mikla kraft og hugmyndaauðgi sem einkennir íslenska húsgagnahönnun og hér má sjá margt af því nýjasta og ferskasta.

En 10+ er ekki bara glæsileg sýning heldur einnig upptakturinn að þróunarverkefninu HÖNNUN Í ÚTFLUTNING. Tilgangurinn með því er að leiða saman framleiðendur og hönnuði, innleiða sýn hönnunar við vöruþróun, efla þátt hönnunar innan fyrirtækja og auðvitað að auka innlenda framleiðslu og nema ný lönd með útflutningi á íslenskri hágæðavöru.

Að baki verkefninu standa Íslandsstofa, Hönnunarmiðstöð Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Samtök iðnaðarins.

Svo er bara að drífa sig á 10+ um helgina!

Þorkell lGunnar Gudmundsson, einn af frumherjunum, sýnir Katrínu iðnadarráðherra nýjustu stólahönnunina 

 

 

 

 

 

Þorkell Gunnar Guðmundsson, einn af frumherjunum, sýnir Katrínu iðnaðarráðherra nýjustu stólahönnunina.