NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Viljayfirlýsing send AGS vegna fimmtu endurskoðunar efnahagsáætlunar Íslands

Íslensk stjórnvöld hafa sent Alþjóðagjaldeyrissjóðnum viljayfirlýsingu vegna fimmtu endurskoðunar efnahagsáætlunar Íslands í samstarfi við sjóðinn. Stefnt er að því að endurskoðun efnahagsáætlunarinnar verði tekin fyrir í stjórn sjóðsins 3. júní næstkomandi. Sem fyrr verður yfirlýsingin birt opinberlega eftir að endurskoðunin hefur verið samþykkt. Í kjölfarið opnast fyrir aðgang að síðasta fjórðungi lánafyrirgreiðslu Norðurlandanna auk frekari lána frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.