NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Atvinnuvegaráðuneytið

OECD spáir 2,2% hagvexti á Íslandi á árinu

Efnahags- og framfarastofnuni, OECD, birti í gær skýrslu sína Economic Outlook, sem út kemur tvisvar á ári. Í þeim kafla skýrslunnar sem Ísland er til umfjöllunar  kemur fram að OECD spáir 2,2% hagvexti á árinu vegna aukinna fjárfestinga og einkaneyslu. Þá er spáð 2,7% verðbólgu á árinu og að atvinnuleysi minnki niður í 7%.

OECD telur að óvissa ríki um aðgengi að alþjóðlegum fjármálamörkuðum og vilja til erlendrar fjárfestingar á Íslandi í kjölfar Icesave-kosninganna. Þá hvetur stofnunin stjórnvöld til að halda sig við stefnu um hallalaus ríkisfjármál árið 2013, lækkun skulda og afnám gjaldeyrishafta.

Í spá framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá því fyrr í mánuðinum   var búist við 1,5% hagvexti á árinu, en svipuðu atvinnuleysi. Í spá Seðlabankans frá apríl  var gert ráð fyrir 2,7% hagvexti og 2,8% verðbólgu, en þeim mun meira atvinnuleysi, eða 7,7%. Hagstofan spáði í apríl  2,3% hagvexti í ár, 2,6% verðbólgu og 7,3% atvinnuleysi.