NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Innviðaráðuneytið

Sameiningarkosningar á laugardag

Kosningar um sameiningu sveitarfélaganna Bæjarhrepps og Húnaþings vestra fara fram laugardaginn 3. desember næstkomandi. Kjörstaðir verða bæði á Hvammstanga og á Borðeyri.

Sameining sveitarfélaganna tveggja hefur verið til umfjöllunar undanfarin misseri. Í Húnaþingi vestra eru liðlega 1.100 íbúar en hringum 100 manns búa í Bæjarhreppi. Haldnir hafa verið fundir með íbúum beggja sveitarfélaganna til að fjalla um fyrirhugaða sameiningu og fyrir liggur skýrsla KPMG þar sem fjallað er um áhrif sameiningar.