NOTE: This article is more than 5 years old.
27. janúar 2012
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Nýr aðstoðarmaður efnahags- og viðskiptaráðherra

Valdimar Halldórsson viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar efnahags- og viðskiptaráðherra.
Valdimar er með B.A. gráðu í hagfræði og M.Sc. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Valdimar hefur um 10 ára reynslu á fjármálatengdum markaði. Hann starfaði áður hjá Hagstofu Íslands, Íslandsbanka/Glitni og IFS Greiningu. Frá árinu 2011 starfaði Valdimar hjá Markó Partners við fjármála/sjávarútvegstengd verkefni.