NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Sala á grænum upprunaábyrgðum raforku geta orðið álitleg búbót  


Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Íslensku orkufyrirtækin gætu horft fram á umtalsverðar tekjur í tengslum við sölu á upprunaábyrgðum grænnar orku. Evrópusambandið hefur sett sér metnaðarfull markmið um aukinn hlut vistvænnar orku  og ein af leiðunum til að ná settu marki er að fyrirtæki geti sýnt fram á að raforka sem jafngildir orkunotkun þeirra sé framleidd með vistvænum hætti. 

Orkufyrirtæki annars staðar í Evrópu hafa selt upprunaábyrgðir til nokkurra ára og síðastliðin tvö ár hefur Landsvirkjun verið að feta sig inn á þennan markað. Það sem gerir málið enn álitlegra en fyrr er að Landsnet uppfyllir nú öll skilyrði til að votta græn skírteini íslenskra orkufyrirtækja en fram til þessa hefur Landsvirkjun nýtt sér vottun þýskra aðila.

Búðarhálsvirkjun mun hefja raforkuframleiðslu á árinu  2014 og gera menn sér góðar vonir um að vel gangi að selja upprunaábyrgðir  vegna hennar en upprunaábyrgðir sem koma frá virkjunum sem hefja rekstur eftir 25. júní árið 2009 telja upp í 2020 markmið Evrópusambandsins.

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag