NOTE: This article is more than 5 years old.
{_Published:d. MMMM yyyy}
/
Atvinnuvegaráðuneytið
23 nýsveinar (af báðum kynjum) í sérflokki - leggið nöfnin á minnið!

Það hvernig okkur tekst til við að byggja upp sterkt og kraftmikið atvinnulíf fer að mestu eftir þeim mannauði sem við höfum yfir að ráða. Á þeirri vegferð eiga nýsveinarnir 23 sem Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík heiðraði um liðna helgi fyrir afburðanámsárangur örugglega eftir að skipa sér í fylkingarbrjósti.
Jafnframt viðurkenningum nýsveina var Ragnar Axelsson, ljósmyndari, tilnefndur og heiðraður sem iðnaðarmaður ársins og fyrirtækin GO Form Design Studio og Brúnás Innréttingar hlutu viðurkenningu fyrir samstarf hönnuða og framleiðenda.
Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík var stofnað 1867 og fagnar nú 145 ára afmæli. Tilgangur þess frá upphafi er að „efla menningu og menntun iðnaðarmanna og styrkja stofnanir sem starfa í þeirra þágu“.
| Verðlaunahafi | Iðngrein | Meistari | Skóli |
| Dagur Hilmarsson | Rafvirkjun | Gunnar Frímannsson | Verkmenntaskólinn á Akureyri |
| Sigurgísli Jónasson | Rafvirkjun | Jónas Björnsson | Fjölbrautaskólinn í Breiðholti |
| Ágústa Ýr Sveinsdóttir | Rafvirkjun | Rúnar Pálsson | Fjölbrautaskólinn í Breiðholti |
| Þóra Björk Samúelsdóttir | Rafvirkjun | Þorsteinn Pálsson | Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins |
| Smári H. Ragnarsson | Vélvirkjun | Hjörtur Elefsen | Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra |
| Tyrfingur Sveinsson | Vélvirkjun | Jón Ólafur Vilhjálmsson | Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins |
| Kristján Bjarki Purkhus | Rafeindavirkjun | Valdemar Gísli Valdemarsson | Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins |
| Hörður Vilberg Harðarson | Rafeindavirkjun | Valdemar Gísli Valdemarsson | Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins |
| Hermann Þór Gíslason | Rafeindavirkjun | Valdemar Gísli Valdemarsson | Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins |
| Sylvía Dagsdóttir | Rafeindavirkjun | Valdemar Gísli Valdemarsson | Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins |
| Flóki Sigurðarson | Rafeindavirkjun | Erlingur Kristjánsson | Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins |
| Einar Þór Guðmundsson | Grafísk miðlun | Ásta Lorange | Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins |
| George Kristófer Young | Grafísk miðlun | Kristján G. Bergþórsson | Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins |
| Fanney Einarsdóttir | Grafísk miðlun | Bjargey Gígja Gísladóttir | Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins |
| Sandra Ösp Konráðsdóttir | Snyrtifræði | Aðalheiður Ósk Þorleifsdóttir | Snyrtiskólinn |
| Ólína Björk Hjartardóttir | Snyrtifræði | Jónína Hallgrímsdóttir | Fjölbrautaskólinn í Breiðholti |
| Finnur Einarsson | Rennismíði | Guðmundur Ólafur Halldórsson | Borgarholtsskóli |
| Guðmundur Hinrik Gústavsson | Rennismíði | Helgi Stefánsson | Iðnskólinn í Hafnarfirði |
| Nanna Sigurðardóttir | Matreiðsla | Jónas Már Ragnarsson | Menntaskólinn í Kópavogi |
| Kristján Benjamínsson | Múrsmíði | Hannes Björnsson | Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins |
| Stefanía Höskuldsdóttir | Framreiðsluiðn | Gígja Magnúsdóttir | Menntaskólinn í Kópavogi |
| Grétar Þór Björnsson | Kjötiðn | Róbert Ragnar Skarphéðinsson | Menntaskólinn í Kópavogi |
| Grétar Mar Axelsson | Kjötiðn | Jón Ágúst Knútsson | Verkmenntaskólinn á Akureyri |
