Ráðherra heimsækir Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri

Steingrímur J. Sigfússon ráðherra atvinnuvega- og nýsköpunar heimsótti LbhÍ á Hvanneyri í gær og fræddist um helstu verkefni, kynnti sér rekstur skólans og fór í skoðunarferð um Hvanneyrarþorp. Ráðherra hitti einnig á Hvanneyri forystufólk sveitarfélagsins Borgarbyggðar.
"Heimsókn Steingríms var mjög mikilvæg og vel heppnuð enda afar brýnt að treysta samstarf við ráðuneyti atvinnuvega- og nýsköpunar, því undir það ráðuneyti heyra mjög mörg af okkar verkefnum á sviði rannsókna og þróunar. Við fórum t.a.m. vel yfir ýmiss samningamál auk þess sem við kynntum m.a. fyrir Steingrími vinnu okkar við undirbúning Orkuseturs landbúnaðarins," sagði Ágúst Sigurðsson, rektor.

Á meðfylgjandi mynd eru f.v. Bjarni Guðmundsson, prófessor, Ragnar Frank, forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar, Steingrímur Sigfússon, ráðherra, Ágúst Sigurðsson, rektor, Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, varaþingmaður VG og Geirlaug Jóhannsdóttir, sem situr í sveitarstjórn Borgarbyggðar.